Flettingar í dag: 34
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 142
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 356931
Samtals gestir: 147198
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 08:41:27

13.02.2012 13:28

Loðnuveiðar, landanir og Whitney Houston

Heilir og sælir lesendur góðir!! Að sökum mikilla anna hefur ritstjórn ekki séð sér fært að vera virk í bloggskrifum síðan hún mætti um borð, loðnuveiðar hafa verið í bakgarðinum hjá okkur og því hefur vinnan töluvert verið að trufla bloggsíðuna okkar.
Núna erum við búnir að vera á næturvinnu síðustu daga, þ.e. siglt á miðin á kvöldin, kastað á næturnar, inn á morgnana, landað/sofið á daginn, menn eru glaðir og himinsælir með þetta fyrirkomulag, því þetta er 4 dagurinn sem þetta tíðkast hjá okkur á Bassanum.

Mikil sorgartíðindi bárust til okkar þegar það fréttist að okkar ástkæra Whitney Houston féll frá um síðastliðna helgi, þetta var okkur mikið reyðarslag og sérstaklega í ljósi þess sem að okkar ástkæri skipstjóri sir Jóhannes Danner er mikill aðdáandi hennar og frétti ég á göngunum að hann ætti áritað plaggat frá söngkonunni, og verður spennandi að sjá hvort hann vilji leyfa mér að smella mynd af því og birta hér við tækifæri, en ég læt eftirfarandi lagbút duga í bili.

http://www.youtube.com/watch?v=eH3giaIzONA&ob=av3e

En þetta er einmitt uppáhalds lag sir Jóhannesar og hef ég innherja upplýsingar frá látúnsbarkanum og okkar ástkæra kokk, söngvara PARKET, honum Kristjáni Haukssyni að sir Jóhannes bæði þá alltaf að spila þetta lag þegar hann kemur á böll, og þeir láta sko slag standa, enda líka miklir aðdáendur Whitney Houston og hamingjan birtist í öllum hornum. En við skulum samt sem áður votta öllum aðdáendum og fjölskyldu hennar virðingu okkar.

En jæja lesendur góðir, Bassamenn biðja að heilsa í bili og viljum við koma fram þakklæti til allra lesenda og velunnara okkar og viljum við því koma með skemmtilega getraun í tilefni dagsins, fyrir rétt svar eru vegleg verðlaun í boði, en það er full mjólkurferna af frosinni loðnu..

spurt er... Hvað hét Færeyska konan sem Daníel Ólafsson giftist í Dalalíf??


28.01.2012 18:46

2-1...sorry

Það er barasta komið að fréttaskoti af heljarmennunum á Bassanum!!
Reyndar er staða mála eilítið breytt, hin nýja ritstjórn síðunar er í sitthvorum landshlutanum og hvorugur þeirra er á sjó.  

Menn hafa fylgst með gangi mála um borð og hafa veiðar gengið sinn gang og nú er Bassinn að landa á Höfn, tekin voru 3 hol í túrnum og höfðust rúmlega 900 tonn uppúr krafsinu og ætla menn að halda til hafs aftur í kvöld.

Hvernig væri nú að ræða mál málanna........ LEIK DAGSINS, ég fékk nefnilega þær fréttir í dag þegar ég bjallaði í fréttamann minn um borð að skipstjórar hafi tekið leikinn saman í borðsalnum, menn þorðu ekki öðru en að hafa Álftarfjarðar Tröllið á milli þeirra ef uppúr skildi sjóða, sem betur fer fór það ekki svoleiðis, menn horfðu saman á leikinn í messta bróðerni og skildu sáttir að leikslokum þrátt fyrir sannfærandi sigur heimamanna í Liverpool, en þeir sem ekki vita þá bar Liverpool sigurorð af Man. Utd. í ensku bikarkeppninni í dag, og enduðu leikar 2-1, og eins og alþjóð veit þá byrjaði hinn heimsfrægi grátkór stuðningsmanna Man. Utd. strax eftir leik, en þessi sami kór mun spangóla fram yfir næsta þorrablót. En við skulum samt muna drengir mínir að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir :)

Annars er lítið annað að frétta, spilamennskan gengur sinn gang um borð hjá drengjunum, meðlimum Hommaklúbbsins fjölgar hratt og örugglega með hverjum deginum, allir eru kampakátir með það.

Vararitstjóra langar að senda yfirritstjóra barráttukveðjur og batakveðjur og hlakkar honum til þegar 2 naktir sameinast á ný!!

kveðja þangað til næst......

17.01.2012 20:58

Loðnuveiðar og iðnaðarsalt

Góðan daginn, hér hefur ný ritstjórn tekið völdin, og ætlum við að gera mjög heiðarlega tilraun til þess að halda þessum geysivinsæla bloggvef virkum og setja inn reglulegar færslur.

Það sem er annars af frétta af okkur að í síðustu löndun urðu mannaskipti í brúnni, Jóhannes Danner fór að sinna hundum og fjölskyldu og Sigurður Bjarnason mætti galvaskur eftir jólafrí og er það á vörum manna að hann verði að herða sig í herbalife ef ekki á illa að fara. Einnig urðu breytingar í eldhúsi, Stefán mætti aftur eftir stutta veru í landi. Af dekkgenginu var það að frétta að Álftarfjarðar Tröllið (Jökull Helgason) slapp á ball, spenningurinn var mikill hjá honum og hafði hann fengið lánað kústskaft og sjóstakk til að taka létta æfingu fyrir þennan dansleik.

Af veiðum í þessum túr, þá er það að frétta að það voru tekin 3 hol og uppskárum við rúm 850 tonn, vorum kallaðir í land og við bíðum núna fyrir utan ósinn og reiknum við með að komast inn á miðnætti eftir að hafa verið að gæla við gatið í 12 tíma..... geri aðrir betur!!

Ekki hefur verið eins bras á okkur í þessum túr líkt og undanfarna túra, enginn hefur farið í glussabað og allir brosa glaðir úti á dekki. Hins vegar fannst honum eiturefna Ali (Kristján frá Djúpa(læk)vogi) ekki vera nógu hreint loft fram í RSW gangi og ákvað að blanda saman hinum ýmsu efnum saman, ekki er vitað hvort iðnaðarsalt hafi verið í blönduni, en starfandi mönnum féllust hendur og hér eftir fær hann einungis að þrífa með volgu vatni eða köldum sjó.

Jæja þá er þetta komið gott í bili. Strákarnir af bassanum biðja að heilsa öllum og minna á að elska skal náungann!!



13.01.2012 14:56

2012

Jaxlarnir á Bassanum óska öllum gleðilegs árs og velfarnaðar á þessu herrans ári.
Í stuttu máli erum við að ljúka annarri veiðiferð og hafa þær ekki verið tíðindalausar
Árið byrjað með því að grilla eins og eitt stk rótor við trolltrommluna og erum hálf máttlausir fyrir vikið.
Vélstjórarnir hafa haft nóg við að vera glussahafarí hingað og þangað en er vonandi að hafast fyrir horn. Fyrsta alvöru brælan gengin yfir en sjálfsagt von á fleirum það er vetur á íslandi.
Veiðar hafa gengið þokkalega þegar hægt er að vera með trollið í hafi en nótaveiði er ekki í boði eins og er.
látum þetta gott heita og rennum nokkrum myndum með.

Strákarnir að klára að taka nótina um borð (smá fyrirferð)

Svona leit hún út eftir 3 köst og gangfært úr stjór yfir í bak

Höfðinginn var með fyrri túrinn sem Lærimeistari (Ragnar með stjörnur í augunum að fá að vera með)

Yfirvélstjóranum falla sjaldan verk úr hendi ( hér í peruskiptum)

Jón,Heiðar, Öddi og Elvar losa hlerann frá á Eskifirði í upphafi árs og Björn fylgist með þeim.
Sólin séð með linsu hitamyndavélarinnar (þessi vél er tær snilld)

Og að lokum auglýsing frá Vélstjóranum


Vonandi að þetta veki bloggið okkar upp aftur en allavega heil að sinni.
Bassamenn
  • 1